To be a nutter, you got to become one


Ofurmennið var fært jarðarbúum af geimverum sem vildu ná völdum yfir jörðinni. Af sökum illsku og græðgi mannana var geimveran heilaþvegin og fengin til að vinna sem þræll réttvísarinnar til dauðadags. Ég er kominn á sjónarsviðið til að taka við þar sem ofurmennið lét af störfum (ef réttlætið hentar mér, ef almannahagsmunir eru í mína þágu, ef ég kem út í gróða, þá er ég mættur á staðinn og berst fyrir smælingjana)
| Tölvupóstur | |
[::..archive..::]
[::..Gestabókin..::]

Skoðaðu gestabókið mitt
Skrifaðu í gestabókið mitt
[::..Teljari..::]
Þetta er heimur ofurmennisins
Hér býr verndari smælingjanna
Andstæðingur skipulagðrar glæpastarfsemi
Mafíósar óttast mig
Kvenmenn dýrka mig
Það er gott að vera ég

[::..Gestakortið..::]
[::..Kallar sem eru skemmtilegir..::]
:: Leibbi
:: Grettir
:: Völundur
:: Auðvaldið
:: The Oscar
:: Herrn Albin
:: Darkbastard
[::..Gellur sem eru skemmtilegar..::]
:: Ósk
:: Keiz
:: Hringl
:: Katrin
:: Icelily
:: Hildur
:: Sigrun
:: Stina
:: Draslrún
:: GeimVEIRA
:: Vatnafetish
[::..Hressandi..::]
:: Gellz
:: Brjóst
:: Tilveran
:: Bloggtré
:: Netþýðari
:: Newcastle
:: Batman.is
:: Sexylosers
:: Newcastle.is
[::..Fjölskyldutréð..::]
[::..Vídjós..::]
:: Bloglove
:: Ísglenst star vors
[::..Stöðumælaverðir dauðans..::]
:: Runtari
:: Dr Johns
:: Herra Geiri
:: Mr conman
:: Mr helmetman
[::..Umheimurinn..::]
Vefhringur
< ? iCeBloG # >

Leit.
Af:
Í:
[::..Teljari..::]
Teljari

:: föstudagur, maí 07, 2004 ::

Vegna greinaskrifa um fjöldamótmælasöfnunar hagsmunafélags

"Það er greinilega fólk sem þarf að stunda vinnu sína svo að við fáum hlutlausar fréttir"

Ég get ekki annað sagt en að það hafi verið frekar lítið um hlutlausar fréttir að undanförnu.

Hvert sem litið er, er úthúðað hvað ríkisstjórnin sé hræðileg, illvirkjar, einræðisherrastjórn, er það tilviljun? Eigandi þessa fjölmiðlarisa er opinber fjandmaður "Kim Il eitthvað"(eins og hann hefur verið kallaður af starfsmanni Baugs). Sýnir þetta ekki hvað fjölmiðlavaldið er ótrúlega sterkt, minnir mig á atriði í gremlins2, þar sem kú var á rannsóknarstofu, með tæki á hausnum. undir hljómaði "all is well, I enjoy milking". m.ö.o.; fjölmiðlavaldið er tæki sem hefur vald til heilaþvotta. Ef ég ætti þetta markaðsráðandi afl, myndi ég pottþétt blóðmjólka það til að ná sem mestum hagnaði útúr.

Skv. meðalhófsreglunni, held ég að fólk þyrfti ekki að hafa neinar áhyggjur þó það eigi kannski hlut í eimskip og ætli að fara að reka fjölmiðil, s.s. eins og blogg, sem það í raun er.

Mér finnst boðun Norðurljósa á útifund greinilegt dæmi þess að ef fyrirtækið telur nauðsynlegt, þá muni það nota vald sitt, eins og það gerði í gær, 6. maí.

Persónulega hef ég ekki lesið þetta blessaða frumvarp og trúi ekki orði af því sem hefur verið sagt í fjölmiðli sem er þó vitað mál að það beinist gegn, enda eðli hvers dýrs að verja sig með krókum og klóm ef það er króað af.

Því miður fyrir Íslendinga, en við erum bara það fámenn að við verðum að sætta okkur við gefinn hlut, einn maður gæti tæknilega séð eignast allt friggin landið ef honum þætti það hressandi, er ekki Bill Gates með margfaldar tekjur íslenska ríkisins á ári? Er ekki Baugur metinn á einhverja tugi (hugsanlega hundrað, veit ekki) milljarða? Það er hægt að gera ýmislegt við það traust sem manni með þesskonar fé á milli handanna.
:: jójó 11:12 f.h. [+] ::
...
Comments: Skrifa ummæli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?