Ofurmennið var fært jarðarbúum af geimverum sem vildu ná völdum yfir jörðinni.
Af sökum illsku og græðgi mannana var geimveran heilaþvegin og fengin til að vinna sem þræll réttvísarinnar til dauðadags.
Ég er kominn á sjónarsviðið til að taka við þar sem ofurmennið lét af störfum (ef réttlætið hentar mér, ef almannahagsmunir eru í mína þágu, ef ég kem út í gróða, þá er ég mættur á staðinn og berst fyrir smælingjana)
Þetta er heimur ofurmennisins
Hér býr verndari smælingjanna
Andstæðingur skipulagðrar glæpastarfsemi
Mafíósar óttast mig
Kvenmenn dýrka mig
Það er gott að vera ég
"Arnar og Bjarki horfa á sýn", hljómar á eftir tilkynningu þeirra, þegar þeir lýsa því fyrir "áhugasömum" áhorfendum bardaganum milli holyfield og tyson.
Ég spyr, út af því að e-r frægur gerir e-ð, þarf jón jónsson að gera það sama? Verður jón þá séra jón? Ég minni á það, að ekki er erfitt að vera frægur á Íslandi, hell, mér tókst það, einu sinni þegar nærmynd kom af mér í fréttunum, í heilar 10 sek (með klippingum til og frá), það var mjög mikið horft á eftir mér næstu daga...með meðfylgjandi kostum "stjörnulífsins"
:: jójó 9:40 f.h. [+] ::
...