Ofurmennið var fært jarðarbúum af geimverum sem vildu ná völdum yfir jörðinni.
Af sökum illsku og græðgi mannana var geimveran heilaþvegin og fengin til að vinna sem þræll réttvísarinnar til dauðadags.
Ég er kominn á sjónarsviðið til að taka við þar sem ofurmennið lét af störfum (ef réttlætið hentar mér, ef almannahagsmunir eru í mína þágu, ef ég kem út í gróða, þá er ég mættur á staðinn og berst fyrir smælingjana)
Þetta er heimur ofurmennisins
Hér býr verndari smælingjanna
Andstæðingur skipulagðrar glæpastarfsemi
Mafíósar óttast mig
Kvenmenn dýrka mig
Það er gott að vera ég
Hvað er það eiginlega sem Disney hefur á móti foreldrum?
Treasure Planet - Pabbinn farinn
Lilo & Stitch - Munaðarlaus
Tarzan - Foreldrarnir dóu, hann lifði af
Mulan - Eina manneskjan í Disney heiminum sem lifir með móður, föður og
ömmu! (hundar ekki teknir með)
Hercules - Svipað og Superman nema að foreldrar hans eru á lífi og eru
Guðir
The Hunchback of Notre Dame - Munaðarlaus, ólst upp einn þarna með
ímynduðu vinunum
Pocahontas - Var einhver móðir?
The Lion King - Pabbinn deyr
Aladdin - Munaðarlaus og skrítinn pabbi
Beauty and the Beast - Bara skrítinn pabbi
The Little Mermaid - Átti hún enga móðir?
Oliver and Company - Munaðarlaus köttur
The Many Adventures of Winnie the Pooh - Áttu þessi dýr enga foreldra og
hvað var þetta bleika dýr? Mjótt svín í röndóttri peysu?
The Jungle Book - Skilinn eftir hjá úlfum, huggó!
The Sword in the Stone - Var strákurinn alinn upp af spúki töframanninum?
101 Dalmatians - 101 dalmatíundar, frekar 90ogeitthvað munaðarleysingjar!
Peter Pan - Foreldrarnir á fylleríi á meðan sjóræningjar elta börnin uppi,
hver lætur stóran hund með húfu passa börn? Pétur Pan og öll börnin þar voru
líka munaðarlaus.
Cinderella - Stjúpmamma dauðans, part 2
Bambi - Mamman skotinn af vondum veiðimönnum, pabbinn has issues
Dumbo - Einstæð fílamóðir, tekin frá henni
Pinocchio - Gamall maður, svo desperate að hann tálgar sér strák úr
viðardrumb
Snow White and the Seven Dwarfs - Stjúpmamma dauðans
Guffi á son, Max, hver er móðirinn?
Ripp, Rapp og Rupp búa hjá Andrési Önd og stundum Jóakim Aðalönd, hvar eru
foreldrarnir og hefði ekki verið hægt að finna eitthvern ættinga sem gengur
um í buxum?
Talandi um buxur, af hverju notar Andrés Önd handklæði þegar hann kemur úr
sturtu til að fela neðri hlutann en gengur samt ekki í buxum!?